Háborg fasteignasala ehf kynnir afar fallega 3ja herbergja 101,9 fm íbúð í Friggjarbrunnur 3, 113 Reykjavík. Um er að ræða steinsteypt hús, byggt árið 2011. Vandaðar innréttingar og gólfefni eru í allri íbúðinni, steinn á borðplötum í eldhúsi og baðherberbergi ásamt vönduðum tækjum. Eigninni fylgir sérbílastæði í bílageymslu. Tvennar svalir sem snúa í suður.
Bókið skoðun og fáið nánari upplýsingar Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali sími 822 1661 eða [email protected]Nánari lýsingSameiginlegur inngangur inn í íbúð. Komið er inn í rúmgóða forstofu sem er flísalögð og með góðum fataskáp.
Hol/gangur er flísalagður og rúmgóður.
Baðherbergið er flísalegt að hluta til, með gólfhita og handklæðaofni. Falleg innrétting, steinn með undirlímdum baðvaski, vegghengt salerni, og sturta með innbyggðu tæki.
Þvottahús er flísalagt með góðum skápum og vaski.
Eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu alrými. Eldhúsið er með stórri eyju, fallegri innréttingu, steinn á borðplötum, undirlímdur stálvaskur, og innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Stofan er rúmgóð með vönduðu parketi á gólfum. Frá stofu er útgengt út á sólríkar svalir sem snúa til suðurs.
Svefnherbergin eru tvö.
Hjónaherbergi með fataskáp og parket á gólfi, þaðan er útgengt út á aðrar svalir.
Auka herbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Sér geymsla fylgir íbúðinni 10,4 fm.
Eigninni fylgir
bílastæði í bílageymslu.
Húsið er staðsett á vinsælum stað í Úlfarsdalnum, skammt frá dalnum í fallegu umhverfi. Stutt er í fallegar gönguleiðir, stofnbrautir, Dalslaug, íþróttasvæði Fram, skóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822 1661 eða [email protected]