Háborg fasteignasala og Katla kynna glæsilega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 13. hæð í Silfursmára 2, Kópavogi. Íbúðin er skráð 116,1 fm að stærð, þar af 9,5 fm sérgeymsla. Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin nýtur glæsilegs útsýnis, mikillar lofthæðar og er með vönduðum innréttingum og frágangi. Húsið er steinsteypt og klætt að utan, byggt árið 2023.Innréttingar eru sérsmíðaðar frá GKS úr spónlagðri reyktri eik, allar hurðir eru extra háar og innfelldar, og gólfefni eru síldarbeinaparket frá Álfaborg. Svört blöndunartæki og rafmagnstenglar eru í samræmdum stíl við heildarhönnun íbúðarinnar. Íbúðin er búin loftræstikerfi með varmaskipti sem tryggir gott loftflæði og orkusparnað. Einstök eign fyrir vandláta á eftirsóttum stað í Kópavogi.
Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed, lögg. fasteignasali, í síma 822 1661 eða [email protected].
Nánari lýsing:Forstofa / hol: Komið er inn í rúmgóða forstofu með síldarbeinaparketi og góðum fataskápum.
Alrými – eldhús, stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með mikilli lofthæð og stórum gluggum.
Eldhús með innréttingu frá GKS úr spónlagðri reyktri eik, steinborðplötur frá Rein og niðurfelldur vaskur, spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi, combi-ofn og bakaraofn, vínkælir, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. Útgengi á vestur svalir og glæsilegt útsýni úr stofu og eldhúsi.
Svefnherbergi 1: Rúmgott með fataskáp.
Svefnherbergi 2: Einnig rúmgott og með fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt með innfelldu sturtutæki. Innrétting frá GKS, steinborðplata frá Rein, niðurfelldur vaskur og svart blöndunartæki.
Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með góðu vinnuplássi, innréttingu, vaski og stýribúnaði fyrir loftræstikerfi.
Sérgeymsla: Í sameign, 9,5 fm að stærð.
Tvö sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu með lyftuaðgengi og góðri aðkomu.
Húsið er staðsett á vinsælum stað í Kópavogi, rétt við Smáralind. Stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Virkilega falleg eign á eftirsóttum stað í Kópavogi.
Pantið skoðun og fáið nánari upplýsingar Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali sími 822 1661 eða [email protected]