Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali kynna til sölu
Grashaga 13, Selfossi.Vel skipulagt fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með rúmgóðum bílskúr
og grónum, aflokuðum suður garði í grónu hverfi á Selfossi.
Eignin skiptist í íbúð 129,8 m², garðskála 25,1m² og bílskúr 50 m², samtals 204,9 m² samkvæmt Fasteignayfirliti HMS.
Nánari lýsing:Anddyri með fataskáp.
Eldhús með dökkri innréttingu og borðkrók.
Stofa og
borðstofa liggja saman og þaðan er gengið út í
garðskála. Úr garðskála er innangengt í bílskúr.
Fjögur
svefnherbergi eru á svefnherbergisgangi.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, sturta, vaskaskápur og upphengt salerni.
Gestasalerni með vaskaskáp.
Þvottahús og
geymsla, þaðan er útgengt út í garð..
Parket er á gólfum á eldhúsi, stofu/borðstofu, gangi og svefnherbergjum.
Garður er gróinn og þar er stór timburverönd með þremur garðhýsum og nýlegum
rafmagnspotti.
Þak á garðskála er ófrágengið. Þak á húsi er upprunalegt en var að
sögn seljanda málað fyrir tveimur árum.
Loft í bílskúr þarfnast viðhalds.
Á árunum 2018-2019 var skipt um eldhúsinnréttingu, hurðir og gólfefni alls staðar nema í
anddyri og þvottahúsi.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078
eða á [email protected]