Hagamelur 51, 107 Reykjavík (Vesturbær)
67.400.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
74 m2
67.400.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1977
Brunabótamat
37.650.000
Fasteignamat
57.150.000
Opið hús: 02. nóvember 2025 kl. 16:00 til 16:30.

BJALLA 2B

Þórunn Pálsdóttir lgf og Háborg fasteignasala  kynna lausa til afhendingar sérlega bjarta og skemmtilega 3ja herbergja íbúð í hjarta Vesturbæjarins alveg við Vesturbæjarlaugina og Melabúðina.  Íbúðin er í mjög vinsælu  sexstrendingslaga fjölbýli sem byggt var árið 1977.  Gengið er upp tvær hæðir.  Íbúðin er 70,4 fm og til viðbótar er 4,5 fm geymsla á jarðhæð skv.teikningu sem ekki er inni í birtu flatarmáli.  Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected].

Byggingin er einstaklega heillandi mynduð úr þremur sextrendingum sem gefur mjög gott birtuflæði.  Íbúðin er á 2. hæð merkt 51 B 2 H skv.eignaskiptayfirlýsingu og 302 skv. fasteignaskrá.
Teikningin er opin og skemmtileg með stórum gluggaflötum.  Komið er í opna fostofu með góðum skápum og þaðan beint í bjart og skemmtilegt alrými með hálfopnu eldhúsi með góðum eldhúskrók.  Þaðan er gengið út á svalir til austurs og norðurs.  Á vinstri hönd úr forstofu er baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og baðkeri.  Næst er hjónaherbergi með góðum skápum og þar við hliðina barnaherbergi.  Innréttingar og gólfefni íbúðarinnar eru upprunaleg. Sameignin er snyrtileg.

Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús og hjóla og vagnageymsla ásamt geymslu íbúðarinnar.
Einstaklega skemmtilega hönnuð íbúð á þessum frábæra stað í hjarta Vesturbæjarins þaðan sem örstutt er í fjölbreytta þjónustu, leikskóla og fleira.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected]











 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.