Baldursgata 30, 101 Reykjavík (Miðbær)
114.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
6 herb.
127 m2
114.900.000
Stofur
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1921
Brunabótamat
57.850.000
Fasteignamat
86.550.000
Opið hús: 02. nóvember 2025 kl. 15:00 til 15:30.

Háborg kynnir íbúð 201, Heillandi og bjarta  fimm herbergja hæð  á þessum vinsæla stað í Þingholtunum.  Tvö svefnherbergi og þrennar stofur innan í búðar og gott 13 fm  herbergi á fyrstu hæð með aðgangi að baði.  Sólríkar  smeiginlegar þaksvalir á 4.hæð. Rúmgott baðherbergi með opnanlegum glugga.  Góð 5,5 fm geymsla  á 4.hæð undir súð og með mörgum súðarfermetrum.  Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected]

Nánari upplýsingar:
Baldursgata 30 skiptist í tvö hús og er íbúðin í eldri hlutanum (matshluta 1) sem var byggður árið 1921. Aðeins fjórar íbúðir deila inngangi og nær eignin yfir alla aðra hæðina. Þaksvalir á fjórðu hæð eru í sameign með íbúðunum tveimur á þrjiðju  hæð.
Gengið er upp eina hæð og komið í bjarta forstofu.  Á hægri hönd er aðal svefnherbergi íbúðarinnar. Inn af því er annað svefnherbergi sem einnig er hægt að ganga í frá stigapalli eins og nú er gert en eignin nær yfir alla hæðina.  Beint af augum er glæsilegt rúmgott baðherbergi með opnanlegum glugga, sturtu og baðkeri og þvottaaðstöðu.  Fallegr  svartar og hvítar flísar eru á forstofu og baðherbergi, en parket á öðrum rýmum.  Innréttingar og litaval hæfa húsinu einstaklega vel.  Á vinstri hönd frá forstofu er eldhúsið sem tengist þremur björtum samliggjandi stofum sem liggja í hring, en vel væri  hægt að nýta stofurnar sem svefnherbergi.
Bjart og skemmtilegt 13 fm herbergi á fyrstu með aukinni lofthæð tilheyrir íbúðinni.  Það hefur aðgang að  nettu baðherbergi með opnanlegum glugga og sturtu.  Baðherbergið er í sameign með íbúð fyrstu hæðar.

Á undanförnum árum hafa töluverðar endurbætur farið fram á húsinu.  Helst ber að nefna að gluggar og gler íbúðarinnar voru endurnýjaðir árið 2017, skipt um fög og sett tvöfalt gler í samráði við Minjastofnun (ekki var talin ástæða til að skipta um pósta og karma) og fög síðan máluð  árið 2018.   Árið 2020 var gert við þak og steinsteyptan þakkant hússins , sperrur hreinsaðar og rennur og niðurfallsrör endurnýjuð með eldra útliti í samráði við Minjastofnun.

Sérlega smekkleg og heillandi hæð með útleigueiningu á þessum vinsæla stað í hjarta miðborgarinnar.
Allar frekari upplýsingr gefur Þórunn Pálsdóttir lgf.  s:773-6000 og [email protected]



 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.