Opið hús: 17. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Smyrilshólar 4, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 05 02 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í Smyrilshólum 4Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna: 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Smyrilshóla 4 í Reykjavík. Um er að ræða vel skipulagða íbúð með tveimur svefnherbergjum, þvottahúsi innan íbúðar og suðursvölum.
Nánari upplýsingar um eignina veitir
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma
660-5532 eða
[email protected]Íbúðin er á 2. hæð, nr. 0202, og er skráð 83,5 fm samkvæmt skráningu HMS. Geymsla í sameign fylgir íbúðinni en er ekki inni í uppgefnum fermetrum eignarinnar.Skipulag eignar:Komið er inn í flísalagða
forstofu með fataskáp og
gólfhita.Eldhús er með innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Inn af eldhúsi er
þvottahús með innréttingu.
Stofa er rúmgóð og björt með útgengi út á suðursvalir.
Svefnherbergin eru tvö, annað þeirra með fataskáp. Úr svefnherbergjum og eldhúsi er útsýni yfir borgina í átt að Esju.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Parket er á stofu og svefnherbergjum en flísar á votrýmum.
Framkvæmdir og viðhald:Samkvæmt upplýsingum frá eiganda hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram á undanförnum árum:
- Skipt hefur verið um alla
ofna í íbúðinni, sá nýjasti settur upp snemma árs 2024.
- Þak hússins var endurnýjað sumarið 2024.
- Húsið var múrviðgert og málað að utan 2019
- Skipt var um hluta af
innstungum og ljósrofum sumarið 2019.
Sameign:Í húsinu eru 7 íbúðir. Í sameign er m.a. sameiginlegt þvottahús, hjólageymsla og geymslurými. Sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni er staðsett í sameign en er ekki inni í uppgefnum fermetrum eignarinnar samkvæmt skráningu HMS.
Staðsetning:Smyrilshólar eru í Efra Breiðholti þar sem stutt er í skóla, íþróttaaðstöðu, sundlaugar, verslanir og aðra þjónustu. Gott aðgengi er að útivistarsvæðum í Elliðaárdal.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.