Tryggvagata 13 (505), 101 Reykjavík (Miðbær)
79.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
64 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2017
Brunabótamat
46.750.000
Fasteignamat
72.950.000

Háborg kynnir lausa til afhendingar sérlega glæsilega  2ja herbergja útsýnisíbúð á 5.hæð í hjarta borgarinnar  með stórbrotnu útsýni til sjávar og fjalla.  Íbúðin er 63,2 fm og geymsla í kjallara er 1 fm, samtals 64,2 fm.  Glæsilegt alrými  með stórum gólfsíðum útsýnisglugga, rúmgott svefnherbergi með stóru fataherbergi inn af og mjög rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu.  Vandað eikarparket og eikarinnréttingar.  Gólfihiti og steinn í borðum.  Glæsileg vegleg  sameign með sjónsteypu.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected].

Bæði er inngangur í bygginguna frá Tryggvagötu og Geirsgötu, en sameignin er einkar glæsileg með marmara á gólfum og sjónsteypu á veggjum. 
Húsið er afar smekklega hannað af Hildigunni Haraldsdóttur með sjónsteypu bæði á ytra byrði og á veggjum í sameign.Rúmgóðar hjólageymslur eru bæði á fyrstu hæð og í kjallara.
Íbúðin er afar vel skipulgögð þar sem allir fermetrar eru góðir.  Gengið er inn í opna forstofu með opnu fatahengi.    Strax á hægri hönd er mjög rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu.  Gott vinnuborð og bæði er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.  Rúmgott sturturými með innbyggðum blöndunartækjum.
Á vinstri hönd  er eldhúsveggur með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.  Forstofan og eldhúsið er hluti af glæsilegu alrými með mögnuðu útsýni yfir gömlu höfnina, til sjávar og fjalla.  Á hægri hönd úr stofu er svefnherbergið, einnig með glæsilegu sjávarútsýni og þaðan er gengið út á svalir.  Rennihurðar skilja að stofu og svefnherbergi, en inn af því er rúmgott fataherbergi með góðum innréttingum.
Einstaklega skemmtileg útsýnisíbúð á besta stað í hjarta miðborgarinnar við iðandi menningu og mannlíf.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s 773-6000 og [email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.