Skeljatangi 29, 270 Mosfellsbær
Tilboð
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
84 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1994
Brunabótamat
42.750.000
Fasteignamat
67.400.000

Björt 3–4 herbergja íbúð með suðursvölum og stórum afgirtum garði – Skeljatangi 29, Mosfellsbæ
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna: Bjarta og vel skipulagða íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við Skeljatanga 29 í Mosfellsbæ.
Íbúðin er skráð 3ja herbergja, en úr hluta stofu hefur verið útbúið aukaherbergi með því að stækka geymslurými, sem gefur eigninni sveigjanlega nýtingu. 

-  Suðursvalir 
-  3–4 herbergja skipulag með aukarými
-  Stór afgirtur garður í sameign


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali 660-5532 eða [email protected]

Íbúðin er skráð 84,9 fm samkvæmt HMS og með henni fylgir köld geymsla (4,6 fm) auk háalofts sem nýtist vel til geymslu.
Skipulag eignar:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með útgengi á suðursvalir.
Úr hluta stofunnar hefur verið útbúið aukaherbergi með því að stækka geymslurými. Rýmið er gluggalaust en nýtist vel. 
Eldhús er með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi, flísar eru á gólfi.
Herbergin eru þrjú (með aukaherbergi), öll með fataskápum og parketi á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu og speglaskáp, baðkari með sturtuaðstöðu og salerni. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.

Geymsla og sameign:
Með íbúðinni fylgir köld geymsla (4,6 fm) þar sem er rými undir súð sem nýtist vel til geymslu. Auk þess er háaloft sem veitir aukið geymslurými.
Húsið er lítið fjölbýli á tveimur hæðum og í sameign er stór afgirtur garður sem nýtist vel fyrir leik og útiveru.

Staðsetning:
Skeljatangi er staðsettur í rólegu og barnvænu hverfi í Mosfellsbæ þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttaaðstöðu og aðra helstu þjónustu. Falleg útivistarsvæði eru í næsta nágrenni og góðar samgöngur. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.