Grensásvegur 1 turn 1.hæð 106 , 108 Reykjavík (Austurbær)
Tilboð
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
1 herb.
209 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2025
Brunabótamat
114.900.000
Fasteignamat
66.750.000

Háborg fasteignasala kynnir til leigu glæsilegt atvinnuhúsnæði á jarðhæð í nýjum glerturni við Grensásveg 1, 108 Reykjavík. Verslunarrými merkt 106 austan megin við innganginn frá Suðurlandsbraut. Jarðhæðin er 121 fm og rými í kjallara 88,3 fm sem fylgir eigninni. Birt flatarmál 209,3, heildar flatarmál með sameignar fm er samtals 275 fm. 
 
Á jarðhæð turnsins er stór og veglegur aðalinngangur frá Suðurlandsbraut. Þar eru tvö rúmgóð og björt rými sem eru sérstaklega hönnuð fyrir veitinga-, verslunar- eða þjónusturekstur. Um er að ræða fjölhæf og vel staðsett rými sem henta sérstaklega vel fyrir kaffihús, veitingarekstur, sérverslanir, heilsutengd fyrirtæki eða aðra þjónustu.
 
Húsnæðið er staðsett í norðurenda lóðarinnar á móti Glæsibæ og sker sig úr með glæsilegri, bogadreginni glerhönnun sem spannar sjö hæðir. Húsnæðið er hluti af nýju og metnaðarfullu verkefni þar sem lögð er áhersla á vandað efnisval og nútímalega hönnun, með góðri samþættingu íbúða og atvinnustarfsemi á svæðinu.

Fyrirkomulag og möguleikar
Leigusali býður upp á sveigjanlega útfærslu innra skipulags og getur sniðið rýmin að þörfum leigutaka. Leiguverð ræðst af afhendingarstigi eignarinnar.

Staðsetningin er einstaklega hentug fyrir rekstur sem vill vera sýnilegur, miðsvæðis í borginni, þar sem mikill umgangur og góð aðkoma er að rýmunum — bæði gangandi og akandi.

Gott aðgengi og tengingar
Þessi rými bjóða upp á framúrskarandi aðstöðu fyrir fjölbreyttan rekstur á einum af best staðsettu gatnamótum Reykjavíkur. Aðgengi er mjög gott hvort sem er fyrir gangandi, hjólandi eða akandi vegfarendur.

Fyrsti áfangi Borgarlínunnar liggur fram hjá húsnæðinu og er fyrirhuguð stoppistöð í u.þ.b. 200 metra fjarlægð frá aðalinngangi að Suðurlandsbraut, sem styrkir enn frekar framtíðarverðmæti staðsetningarinnar.

Bílageymsla og vistvænar lausnir
Undir húsinu er tveggja hæða bílakjallari með möguleika á að tryggja allt að 10 bílastæði með hverju rými, eftir samkomulagi. Í kjallaranum eru einnig rafhleðslustöðvar og rúmgóð hjólageymsla. Áætlun er um að bjóða leigjendum aðgang að deilibílum í samstarfi við þjónustuaðila.

Pantið skoðun – við sýnum með stuttum fyrirvara.
Við erum sjálf til húsa á 6. hæð í sama turni og getum því brugðist hratt við fyrirspurnum og skoðunum.
 
Nánari upplýsingar veita:
Birkir
– Sími: 867-3388 | Netfang: [email protected]
Jórunn, löggiltur fasteignasali – Sími: 845-8958 | Netfang: [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.