Smyrlaheiði 7, 810 Hveragerði
68.300.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
2 herb.
96 m2
68.300.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
54.150.000
Fasteignamat
64.750.000

Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna í einkasölu fallegt, bjart og vel skipulagt raðhús við Smyrlaheiði 7 í Hveragerði. 

Eignin er skráð 96,6 fm og skiptist í 89,3 fm íbúð og 7,3 fm geymslu í kjallara. Skjólgóð, afgirt timburverönd er við húsið.
Eigninni fylgir stæði í bílakjallara ásamt hlutdeild í sameiginlegu aðstöðuhúsi með veislusal og setustofu. Lyfta er í aðstöðuhúsi og bílakjallara.
 

Gengið er inn í rúmgott, flísalagt anddyri með góðum fataskápum. 
Í svefnherbergi er sexfaldur fataskápur og inn af því er rými sem getur t.d. nýst sem fataherbergi eða geymsla
Á baðherbergi er rúmgóð vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt klósett og handklæðaofn. Þar er einnig “walk in” sturta og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergið er flísalagt að hluta. 
Alrými er bjart og samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Þar er aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar. Eldhúsinnrétting er rúmgóð og með eyju. Tvöfaldur LG ísskápur fylgir, u.þ.b. 8 ára.

Innréttingar hafa verið sprautulakkaðar svartar, sem og fataskápar og hurðir. 
Parket er á öllum gólfum íbúðarinnar nema í forstofu, á baðherbergi og á rými inn af svefnherbergi, þar eru flísar. 
Gólfhiti er í íbúðinni. 
Möguleiki er að búa til annað svefnherbergi í alrými. 
Skipt var um glugga í svefnherbergi 2022. Vörðufell ehf sá um verkið. 

Úr stofu er gengið út á huggulega, afgirta timburverönd með skýli fyrir grill og  lokaðri geymslu.
Hellulagt er fyrir framan húsið, í stéttinni er snjóbræðsla. 

Í bílakjallara er sameiginleg þrifaðstaða fyrir bíla.
Í tveggja hæða aðstöðuhúsi er setustofa og fullbúinn veislusalur fyrir um 50 manns. Þar er lyfta niður í bílakjallara. Búið er að leggja fyrir rafhleðslu bifreiða í bílakjallaranum og samningur er við ON um hleðslustöðvar.

Húsið er byggt árið 2008, timburhús klætt með liggjandi bárujárnsklæðningu. Það er staðsett í litlu, snyrtilegu raðhúsahverfi þar sem lögð er áhersla á vistvæna hönnun. 

Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á [email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.