Reykjastræti 7, 101 Reykjavík (Miðbær)
106.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
74 m2
106.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2019
Brunabótamat
59.150.000
Fasteignamat
107.600.000

Þórunn Páls lgf og Háborg fasteignasala kynna lausa til afhendingar  stórglæsilega 74,5 fermetra 2ja herbergja endaíbúð á þriðju  hæð (317) í afar vönduðu, fallegu og vel staðsettu fjölbýlishúsi við Austurhöfn í hjarta miðborgarinnar. 
Reykjastræti er stórglæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Mikill metnaður var lagður í hönnun og frágang ytra sem innra.
Fasteignamat  er kr. 107.600.000
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir lgf, í síma 773-6000 og [email protected] 

Gengið er inn af svalagangi í góða forstofu. Á vinstri hönd er rúmgott svefnherbergi með góðum skápum. Næst er glæsilegt baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með þvottaaðstöðu og loks tæplega 30 fm samliggjandi eldhús og stofurými með útgengi á 10 fm svalir sem vísa í suðvestur.Svalagólf er viðarklætt.  Fallegt eikarparket er á gólfi allrar íbúðarinnar utan forstofu og baðherbergis. Gólfsíðir gluggar eru í stofunni og innbyggð lýsing í fataskápum og einn rofi sem kveikir og slekkur á öllum ljósum íbúðarinnar.
Innréttingarnar eru sérsmíðaðar frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations. Kvarts borðplötur eru við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyjunni er klætt marmaraflísum. Bökunarofn, helluborð og innbyggð uppþvottavél eru frá Miele en innbyggður ísskápur er frá Liebherr. Spanhelluborðið er með innbyggðri viftu. Á baðherbergi er sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og virkilega falleg innrétting með blöndunartækjum frá Dormbrech.
Íbúðin er skráð 66,5 fm og til viðbótar er 8 fm geymsla.

Eignin Reykjastræti 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 236-9200, birt stærð 74,5 fm.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.