Arahólar 2, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
Tilboð
Fjölbýli
2 herb.
62 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1973
Brunabótamat
31.950.000
Fasteignamat
46.100.000

Snyrtileg og vel staðsett 2ja herbergja íbúð 
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 62,1 m² snyrtilega 2ja herbergja íbúð á 4. hæð við Arahóla 2 í Efra-Breiðholti. 

-  Frábær fyrstu kaup
-  Snyrtilegt og vel viðhaldið hús með lyftu

-  Yfirbyggðar svalir

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða [email protected]

Íbúðin er skráð 62,1 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 57,5 fm og sérgeymsla 4,6 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og skápum.
Aukaherbergi hefur verið útbúið innan íbúðar — gluggalaust en nýtist vel sem skrifstofa, fataherbergi eða geymsla.
Stofa er björt með parketi á gólfi, útgengt á lokaðar svalir með svalaskjóli.
Eldhús með góðri innréttingu og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum, með upphengdu salerni, sturtu og innréttingu með vaski. Tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla, 4,6 m², fylgir íbúðinni.

Skv. upplýsingum seljenda þá hafa þessar framkvæmdir verið gerðar undanfarin ár:
Þak endurnýjað
Báðir gaflar teknir í gegn
Vesturhlið endurnýjuð
Sjálfvirk lýsing sett upp í geymslugöngum
Ný þvottavél í sameiginlegu þvottarými
Nýleg lyfta í húsinu

Sameign og umhverfi:
Snyrtilegt sameiginlegt þvottahús auk hjóla- og vagngeymslu er í sameign. Sameign og stigagangur eru mjög snyrtileg. Eignin tilheyrir húsfélögum Arahóla 2 og Arahóla 2–4, og er hússjóður og umsýsla í höndum Eignaumsjónar.
Stutt er í verslunarmiðstöðina í Hólagarði, góða skóla og leikskóla, auk þess sem örstutt er í Elliðaárdalinn til útivistar.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.