Heiðmörk 15, 810 Hveragerði
68.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
3 herb.
103 m2
68.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1960
Brunabótamat
50.850.000
Fasteignamat
58.900.000

Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna í einkasölu einbýlishúsið við Heiðmörk 15 í Hveragerði.
Um er að ræða mikið endurnýjað einbýlishús í grónu hverfi miðsvæðis í Hveragerði. Húsið er skráð 103,8 fm og skiptist í íbúð og um 24 fm skúr/geymslu. 


Íbúðin skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi.

Gengið er inn í anddyri, þar er fataskápur.   
Alrými er bjart og fallegt, það samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu.
Í eldhúsi er hvít, rúmgóð innrétting frá Ikea. 
Svefnherbergi eru tvö, bæði með fataskápum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er hvít innrétting með speglaskáp, sturta og þvottaaðstaða. 

Á öllum gólfum er parket nema á baðherbergi, þar eru flísar.  

Eignin er samtals 103,8 fm, þar af er geymsla/skúr um 24 fm.
Garður er gróinn og skjólsæll, hiti er í gangstétt út á bílastæði, við bílastæði er hleðslustöð.

Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum.
Skipt var um þak árið 2020.
Allar innréttingar, skápar, gólfefni og hurðir voru endurnýjaðar árið 2023.
2023 var einnig skipt um gler í öllum gluggum nema á baðherbergi, gólfhiti var lagður, lagnir og rafmagn yfirfarið og endurnýjað að hluta. 

Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á [email protected]
 
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.