Arnarsmári 2, 201 Kópavogur
99.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
117 m2
99.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1994
Brunabótamat
57.490.000
Fasteignamat
79.600.000

Háborg kynnir Arnarsmára 2. Glæsileg og björt 3 herb. íbúð á vinsælum stað í smárahverfi Kópavogs.

Falleg 117,8 fm. íbúð á jarhæð í litlu fjölbýli. Fallegt útsýni, rúmgóður bílskúr og sérafnotareitur.

Nánari lýsing:
Forstofa með fatahengi.
Stofa er parketlögð og björt með útgengi á sérafnotareit. Fallegt útsýni til sjávar.
Eldhús er opið við stofu. Parketlagt með hvítri innréttingu. Mikið skápapláss.
Svefnherbergi I Rúmgott með góðum skápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II Skápur. Parket á gólfi.
Þvottahús og geymsla eru saman í rúmgóðu rými. Flísalagt með hillum, vaski og tengjum fyrir þvottavél/þurrkara.

Sérafnotareitur er afgirtur og hellulagður að hluta. 

Bílskúr er rúmgóður (31,6 fm.) Vatn og rafmagn. Rafmagnshurð og gönguhurð. 

Sameign er snyrtileg og vel umgengin. Nýleg teppi og nýlega málað. Rafmagnsopnun á útihurðum og mynddyrasými. Hjólageymsla er í sameign.

Húsið lítur vel út og ber með sér gott viðhald. Þakjárn var yfirfarið og málað árið 2020.

Lóðin er gróin. Stórt malbikað bílaplan og fjórar sameiginlegar bílahleðslustöðvar fyrir Arnarsmára 2-6.

Góð eign á frábærum stað í barnvænu hverfi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla.

Frekari upplýsingar veita:
Alexandra Eik Októsdóttir sölumaður í síma 897-8277 eða á [email protected] og
 Þórir Helgi Sigvaldason lögmaður og lögg. fasteignasali í síma 823-7170 og [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.