Ljósvallagata 22, 101 Reykjavík (Miðbær)
68.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
69 m2
68.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1940
Brunabótamat
36.530.000
Fasteignamat
70.200.000

Háborg fasteignasala og Þórunn Pálsdóttir lgf kynna Ljósvallagötu 22, íbúð 101 – Fallega endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð á  frábærum stað í gamla Vesturbænum.
Eignin er staðsett á einum eftirsóttasta stað Reykjavíkur, beint á móti Hólavallagarði  og í stuttu göngufæri frá miðbænum, Vesturbæjarlauginni  og Melabúðinni
Tvö góð svefnherbergi, opið bjart alrými með fallegu eldhúsi, baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu.  Eignin er 69,8 fm þar af er geymsla á baklóð 5,5 fm og íbúðin 64,3 fm.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected]

Nánari lýsing:
Einstaklega notaleg 69,8 fm íbúð sem hefur verið endurnýjuð á smekklegan hátt þar sem lögð hefur verið áhersla á bjart og opið rými. 
Komið er inn í hol sem tengir saman allar vistarverur íbúðarinnar. Stofa og eldhús mynda bjart og skemmtilegt alrými sem nýtist afar vel. Eldhúsið hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt og fært inn í stofurýmið sem skapar opnara og nútímalegra skipulag.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergið er rúmgott og með fataskáp en minna herbergið var áður eldhús og nýtist vel sem barnaherbergi, skrifstofa eða gestaherbergi.
Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Gólfefni íbúðarinnar eru að mestu leyti parket sem gefur eigninni hlýlegt og fallegt yfirbragð.

Heillandi og vel skipulögð eign þessum vinsæla  stað í hjarta gamla Vesturbæjarins.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Þórunn Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali
773-6000
[email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.