Nönnugata 16, 101 Reykjavík (Miðbær)
55.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
58 m2
55.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1930
Brunabótamat
33.000.000
Fasteignamat
53.950.000

Vel staðsett 2ja herbergja íbúð við Nönnugötu — frábær fyrstu kaup í hjarta 101
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 58,2 m² tveggja herbergja íbúð á 1. hæð við Nönnugötu 16 í hjarta Reykjavíkur. Um er að ræða frábær fyrstu kaup á einum eftirsóttasta stað miðborgarinnar, í rótgrónu steinsteyptu fjölbýli frá árinu 1930. Íbúðin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.

-  Frábær fyrstu kaup
-  Miðsvæðis í 101 í göngufæri við alla helstu þjónustu 
-  Getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða [email protected]

Íbúðin er skráð 58,2 fm samkvæmt HMS, þar af er íbúðin sjálf 49,8 fm og sérgeymsla í kjallara 8,4 fm.
Húsið er steinsteypt fjölbýlishús frá 1930 með átta íbúðum. Húsfélagsgjöld eru 13.248 kr. á mánuði og innifela almennan rekstur, hita, rafmagn í sameign, húseigandatryggingu og þrif á sameign og sorpgeymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa og gangur eru með parketi á gólfi.
Stofa og eldhús eru samliggjandi með parketi á gólfi og eldhúsinnréttingu.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu og flotuðu gólfi.
Sérgeymsla, 8,4 m², fylgir íbúðinni í kjallara.

Sameign og umhverfi:
Sameiginlegt þvottahús er í húsinu. Húsfélagið er virkt, framkvæmdasjóður stendur vel og engar skuldir eru á húsfélaginu. Nönnugata er í grónu og eftirsóttu hverfi í Þingholtunum, í göngufæri við miðbæinn, Tjörnina, Hljómskálagarðinn, kaffihús, veitingastaði, verslanir og fjölbreytta þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.