Grásteinsmýri 3 (105), 225 Garðabær
65.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
62 m2
65.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2026
Brunabótamat
0
Fasteignamat
26.350.000

Háborg fasteignasala kynnir Grásteinsmýri 3 í Garðabæ
Um er að ræða nýbyggingu í litlu fjölbýli með lyftu. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með ál- og bambusklæðningu. Í boði eru góðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Útsýni er úr flestum íbúðum og timburverönd fylgir íbúðum á 1. hæð. Íbúðirnar afhendast án megingólfefna, en baðherbergi eru flísalögð að hluta. Næg bílastæði eru á lóð. Áætluð afhending íbúða er í nóvember/desember 2026.
Sjá heimasíðu Grásteinsmýri

Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lgf :845-8958 eða [email protected], Katla Hanna Steed, lgf, s: 822-1661 eða [email protected] og Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 eða [email protected] 

Nánari lýsing á íbúð 105 – 2ja herbergja

Íbúðin er 62,4 fm að stærð þar af er geymsla 5,3 fm. Sérinngangur. Þegar komið er inn í forstofu tekur við gott skápapláss. Baðherbergi með glugga á vinstri hönd, flísalagt að hluta, góð snyrtiaðstaða á baði. Einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart, með góðum fataskápum. 
Alrýmið er mjög rúmgott og bjart, með opnu eldhúsi hannað í L, eldhúsið með glugga. Stofa er einnig björt og rúmgóð. Úr alrými/stofu er útgengt á verönd.

Grásteinsmýri 3 Garðabæ, hýsir 21 íbúð. Um að ræða nýjar, bjartar og vandaðar íbúðir með góðri lofthæð. Á Álftanesi fær fjölskyldan það besta úr tveimur heimum – rólegt og náttúrulegt fjölskylduumhverfi við sjóinn, en samt stutt í borgina, skóla, íþróttir og alla helstu þjónustu.​​​​​​​

Innréttingar og búnaður
AXIS innréttingar í litnum Cashmere Grey. AEG innbyggð heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakarofn. Baðherbergi eru flísalögð að hluta. Grohe blöndunartæki eða sambærileg. Hurðir, lamir og hurðabúnaður frá Agli Árnasyni. Sér geymsla í kjallara og sameiginleg opin reiðhjóla- og vagnageymsla er í inngarði á milli húsa.
Staðsetning og nærumhverfi
Frábær staðsetning þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttahús eru í göngufæri. Ekkert skutl og engar götur sem þarf að fara yfir. Umhverfið er rólegt og fallegt og aðstaða fyrir fjölskyldufólk er framúrskarandi. Þá eru frábær útivistarsvæði við strandlengjuna. Hestamannafélagið Sóti og fallegar reiðleiðir eru einnig á svæðinu. Aðeins 4 mínútna akstur er frá ljósunum við Actavis.
Athugasemdir
Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á.
Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem fellur ekki undir lokaútgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
Stimpilgjald af kaupsamningi er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. er kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar fer samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu er samkvæmt gjaldskrá.
Húsfélag:
Ekki hefur verið stofan húsfélag, en væntanlegir kaupendur kaupa til með að stofna það þegar þeir eru fluttir.

Nánari upplýsingar veitir Hrefna Harðardóttir, í námi til löggildingar, s:690-0751 eða [email protected] og Alexandra Eik Októsdóttir, sölumaður í s:897-8277 eða [email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.