Grásteinsmýri 3 (203), 225 Garðabær
101.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
120 m2
101.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2026
Brunabótamat
0
Fasteignamat
41.050.000

Háborg fasteignasala kynnir Grásteinsmýri 3 í Garðabæ
Um er að ræða nýbyggingu í litlu fjölbýli með lyftu. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með ál- og bambusklæðningu. Í boði eru góðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Útsýni er úr flestum íbúðum og timburverönd fylgir íbúðum á 1. hæð. Íbúðirnar afhendast án megingólfefna, en baðherbergi eru flísalögð að hluta. Næg bílastæði eru á lóð. Áætluð afhending íbúða er í nóvember/desember 2026.

Nánari upplýsingar veita  Katla Hanna Steed, lgf, s: 822-1661 eða [email protected], Jórunn Skúladóttir lgf :845-8958 eða [email protected] eða Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 eða [email protected]

Nánari lýsing á íbúð 203 – 4ra  herbergja glæsileg horníbúð.
Íbúðin er 120,4 fm að stærð þar af geymsla 9,1 fm. Sérinngangur frá svölum. Forstofa með góðu  skápaplássi. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart, með góðum fataskápumog tvö önnur góð herbergi með skápum. Baðherbergi er með, góðri snyrtiaðstöðu og glæsilegt alrými  er með þvottahúsi inn af.
Alrými er mjög rúmgott og bjart, með opnu eldhúsi.  Úr alrými/stofu er útgengt á sólríkra suðursvalir

Um er að ræða nýjar, bjartar og vandaðar íbúðir með góðri lofthæð, þar sem náttúra, ró og nútímaleg hönnun mætast.

Innréttingar og búnaður
AXIS innréttingar í litnum Cashmere Grey. AEG innbyggð heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakarofn. Baðherbergi eru flísalögð að hluta með xxx. Grohe blöndunartæki eða sambærileg. Hurðir, lamir og hurðabúnaður frá Agli Árnasyni.
Sér geymsla í kjallara og sameiginleg opin reiðhjóla- og vagnageymsla er í inngarði á milli húsa.
Staðsetning og nærumhverfi
Frábær staðsetning þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttahús eru í göngufæri. Ekkert skutl og engar götur sem þarf að fara yfir. Umhverfið er rólegt og fallegt og aðstaða fyrir fjölskyldufólk er framúrskarandi. Þá eru frábær útivistarsvæði við strandlengjuna. Hestamannafélagið Sóti og fallegar reiðleiðir eru einnig á svæðinu. Aðeins 4 mínútna akstur er frá ljósunum við Actavis.
Athugasemdir
Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á.
Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem fellur ekki undir lokaútgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
Stimpilgjald af kaupsamningi er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. er kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar fer samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu er samkvæmt gjaldskrá.


Nánari upplýsingar veita  Katla Hanna Steed, lgf, s: 822-1661 eða [email protected], Jórunn Skúladóttir lgf :845-8958, [email protected] eða Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 eða [email protected] eða Alexandra Eik Októsdóttir, sölumaður í s:897-8277 eða [email protected]






 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.