Borgartún 24, 105 Reykjavík (Austurbær)
79.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
81 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
51.550.000
Fasteignamat
75.700.000

Háborg fasteignasala, Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali og Kristín Högna nemi í löggildingu kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða íbúð með sérinngangi úr inngarði og suðursvölum.
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega!


Eignin er skráð 81,5 fm að stærð, 73,5 fm íbúð og 8 fm geymsla. 
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi, henni fylgja svalir sem snúa til suðurs. 

Í eldhúsi er stór og vönduð innrétting frá Nobilia. Innréttingin er með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Heimilistæki eru frá Siemens.
Í baðherbergi er góð innrétting, spegill með ljósi, “walk in” sturta, upphengt wc og handklæðaofn. Þar er einnig gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.  

Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, fataskápar eru í báðum herbergjum. 

Ljóst harðparket er á gólfi, nema á baðherbergi, þar eru flísar. 

Húsið er byggt árið 2024, staðsteypt og klætt með viðhaldsléttri klæðningu. Það er byggt utan um sameiginlegan inngarð og á 4. og 6. hæð eru sameiginlegir þakgarðar íbúa. 

Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á [email protected] og Kristín Högna nemi í löggildingu, sími 895-8511 og [email protected].
 

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.