Veghús 31, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
68.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
92 m2
68.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1991
Brunabótamat
47.350.000
Fasteignamat
64.750.000
Opið hús: 27. október 2026 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Veghús 31, 112 Reykjavík, Íbúð á 2. hæð. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 27. október 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Háborg fasteignasala, Kristín Högna, nemi í löggildingu fasteignasala, og Þórunn Pálsdóttir  löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Veghús 31. Staðsetningin er afar góð, með stutt í alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir. Umhverfi hússins er rúmgóð lóð og við það er stórt bílaplan með fjölda bílastæða.

Skráning hjá HMS:

Íbúðin er 92,20 fm. Það eru 2 svefnherbergi og 2 stofur. Möguleiki er á að bæta við vegg og útbúa þannig eitt herbergi til viðbótar. Geymsla er skráð 5,2 fm.

Húsið:
Veghús 31 er 11 hæða hús með lyftu og er staðsett í Grafarvogi. Byggingarár er 1991. Húsvörður starfar í húsinu. Samkvæmt seljanda komu nýjar lyftur árið 2025, teppi á sameigninni var skipt út og sameign var máluð. Geymsla fylgir íbúðinni og er á sömu hæð. 

Inngangur:
Við hlið inngangs íbúðarinnar er rúmgóð geymsla sem fylgir eigninni. Forstofa er rúmgóð og þar er gott pláss fyrir yfirhafnir og skó.

Gangur:
Á ganginum á milli inngangs og stofu er gert er ráð fyrir sjónvarpsholi með tenginu fyrir sjónvarp.

Eldhús:
Virkilega opið og bjart eldhús með eyju sem hægt er að sitja við. Tímalaus eldhúsinnrétting og flottar flísar á gólfi. Frá eldhúsi er búr með þvottaaðstöðu og geymsluplássi.

Þvottahús/búr:
Þar er vaskur og gott geymslupláss ásamt aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. 

Stofa:
Stofan er mjög rúmgóð og þar er útgengt á stórar flottar suður svalir. Margir gluggar birta íbúðina og frábært útsýni. Skipt var um parket árið 2024 samkvæmt seljanda. 

Herbergi: 
Tvö rúmgóð og björt herbergi í íbúðinni með fataskápum. Gluggar nýlega endurnýjaðir í svefniherbergjum. 

Baðherbergi:
Baðherbergi var gert upp árið 2019 samkvæmt seljanda. Mjög flott og snyrtilegt baðherbergi með nútímalegum flísum og innréttingum. Rúmgóð og glæsileg sturta með glerskilrúmi.

Húsfélag:
Í húsinu er virkt húsfélag, mánaðarleg útgjöld eru kr: 36.500.

Hverfið:
Veghús 31 er vel staðsett í Grafarvogi, í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Í nágrenninu eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði sem bjóða upp á góða möguleika til útivistar og hreyfingar. Samgöngur eru góðar og stutt labb í strætó.

Nánari upplýsinga veitir Kristín Högna nemi í löggildingu, sími 895-8511 og [email protected] og Þórunn Páls lgf í síma 773-6000 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.