Digranesheiði 45A, 200 Kópavogur
139.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
5 herb.
143 m2
139.500.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2026
Brunabótamat
0
Fasteignamat
95.850.000

Digranesheiði 45 A,B,C og D, Digranesi, Kópavogi eru mjög falleg og vel skipulögð raðhús á 2.hæðum að stærð 143,7 fm (með bílskýli).  Vandaðar innréttingar frá Parka. Bílskýli með snjóbræðslu og tengi fyrir rafhleðslu. Gólfhitakerfi í húsinu. Aðkoman að húsunum er hellulögð með snjóbræðslu undir. Hjóla og vagnageymsla við austurhlið bílskýlis. Verktaki er Eldfoss ehf með kennitölu frá "84. Húsin afhendast fullbúin í janúar/feb 2027.

Upplýsingar um eignirnar veitir Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða [email protected]

Húsin skipa:
Neðri hæð:
Forstofu, geymsla, snyrting, opið eldhús með eyju inn í fallegar stofur með gólfsíðum gluggum og útgengt út í suður garð. Garðinum verður skilað með túnþökum og lögnum fyrir heitum potti
Efri hæð: 3 svefnherbergi, úr hjónaherbergi er útgengt á suður svalir, baðherbergi flísalagt að hluta og með góðri snyrtiaðstöðu. Gluggi á baði og baðkar, falleg innrrétting undir handlaug og spegill fyrir ofan. Þvottahús með góðri vinnuaðstöðu

Staðsetning: Gróið íbúðarhverfi. Húsin standa á hæð i Digraneshverfi. Útsýni mjög gott bæði af efri hæð og frá suður garði. Álfhólsskóli í nokkra metra fjarlægð og íþróttahús Digranes. Því eru þessi hús praktísk og henta vel fyrir fjölskyldufólk. Mjög stutt í verslun og alla almenna þjónustu.

*Húsið er í byggingu og skráning er í ferli. Uppgefnar stærðir eru samkvæmt fyrirliggjandi teikningum, með fyrirvara um endanlega skráningu í fasteignaskrá.

Fyrir áhugasama:
Pantið skoðun í síma 845-8958 eða [email protected] og Hrefna Harðardóttir, nemi í löggildingu í síma 690-0751 og [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.